Yfirvöld í Los Angeles hafa ákært 13 dreng fyrir íkveikju og vera þannig valdur að skógareldum sem geisuðu á 850 hektara svæði í síðasta mánuð. Eldurinn geisaði í skógi Angeles þjóðgarðsins og brenndi allt á 7,7 ferkílómetra svæði en íbúðarhús sluppu.
Saksóknarar ákærðu drenginn annars vegar fyrir að hafa kveikt eld í skógi þann 25 ágúst og hins vegar fyrir íkveikju af gáleysi.
Degi síðar kviknaði eldur í sama skógi og brenndi niður nær 650 ferkílómetra, og eyðilagði 89 íbúðarhús.Yfirvöld hafa hins vegar ekki ásakað drenginn um að vera valdur að þeim eldi.
Drengurinn er ekki í gæsluvarðhaldi en verður að mæta þegar málið verður tekið fyrir í nóvember. Verði hann sakfelldur getur hann búist við því að vera í fangelsi til 25 ára aldurs.