Tvö börn myrt í sjálfsmorðsprengjuárás

Tíu ára drengur og sjö ára stúlka týndu lífi í morgun í sjálfsmorðssprengjuárás í Herat í Afganistan.

Er tilræðismaðurinn talin hafa verið kona en hún sprengdi sjálfa sig í loft upp í mannþröng í borginni Herat.  Þá slösuðust sjö ára gömul stúlka og eldri maður.

Að sögn lögreglumanns bendir allt til þess að kona hafi verið að verki en rifrildi af bláu klæði sem er talið hafa verið búrka hafa fundist allt í kringum tilræðisstaðinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert