Osama bin Laden, leiðtogi hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda, hefur sent frá sér nýja hljóðupptöku, þar sem hann ávarpar Evrópumenn og hvetur þá til að hætta öllu samstarfi við Bandaríkjamenn og draga herlið sín frá Afganistan. Þetta segir eftirlitsstofnunin SITE.
SITE segir að útgáfur með enskum og þýskum texta hafi verið birtar á netinu. Á fréttavef Reuters er tekið fram að kosið verði til þings í Þýskalandi á sunnudag.
Bin Laden ávarpaði Bandaríkjamenn í síðustu hljóðupptöku sem hann sendi frá sér nokkrum dögum eftir að þess var minnst að átta ár eru liðin frá hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin 11. september 2001.