Heimatilbúinn loftbelgur, sem sveif yfir Coloradoríki í Bandaríkjunum síðdegis á miklum hraða og í mikilli hæð, er lentur skammt frá Denver. Talið var að 6 ára gamall drengur væri í belgnum en hann var hvergi að sjá þegar belgurinn lenti. Er drengsins nú leitað á svæðinu sem loftbelgurinn fór yfir.
Bandaríska þjóðin hefur fylgst með málinu í kvöld en sjónvarpsstöð í Denver sýndi myndir beint af loftbelgnum þar sem hann sveif í allt að 2 km hæð og þess á milli féll hann hratt í átt til jarðar. Hraði belgsins mældist allt að 40 km á klukkustund.
Að sögn lögreglu í Colorado var Richard Heene, faðir drengsins, að vinna við belginn í garði við hús fjölskyldunnar. Talið var að drengurinn, sem heitir Falcon, hafi klifrað upp í trébúr sem fest var við belginn. Af einhverjum ástæðum losnuðu festingar loftbelgsins í kjölfarið og hann sveif af stað. Búrið var hvergi sjáanlegt þegar belgurinn lenti.
Að sögn bandaríska fjölmiðla tók Heene fjölskyldan nýlega þátt í raunveruleikaþættinum Wife Swap á ABC sjónvarpsstöðinni en þar eru tvær ólíkar fjölskyldur valdar til þátttöku og síðan skiptast þær á mæðrunum í hálfan mánuð.