Fellibylurinn Rick er yfir Kyrrahafinu um 400 km suðvestur af Acapulco í Mexíkó og er nú skilgreindur 3. stigs fellibylur en vindhraðinn er 51 m á sekúndu.
Spáð er að fellibylurinn styrkist enn frekar næstu 36 klukkutímana og er gert ráð fyrir því að hann verði orðinn 4. stigs fellibylur í kvöld eða á morgun.
Rick er sjöundi fellibylurinn á svæðinu á tímabilinu og gætir áhrifa hans þegar á suðurströnd Mexíkó.