Karlmaður var í kvöld skotinn í höfuðið í Lindevangsparken á Friðriksbergi í Kaupmannahöfn í kvöld. Maðurinn var fluttur á Rigshospitalet og er ástand hans sagt alvarlegt.
Lögregla segir, að maðurinn sé 18 ára og af erlendum uppruna. Ekki er vitað til þess að hann tengist glæpaflokkum, sem á undanförnum mánuðum hafa átt í blóðugum átökum í borginni.
Fram kemur á vef Jótlandspóstsins, að lögregla hafi handtekið mann í nágrenninu en hann þótti grunsamlegur vegna þess að hann var m.a. klæddur skotheldu vesti. Skammt frá fannst bíll af gerðinni Skoda Octavia, sem hafði verið kveikt í.
Lögreglan segir, að vitað sé að hasssala hafi farið fram í Lindevangsparken.