Mannréttindasamtökin Human Rights Watch segja ekkert vitað um afdrif 43 manna, uighura, sem teknir voru fastir eftir þjóðflokkauppreisn í Xinjiang í Kína í sumar.
Um er að ræða unga menn og dregni á táningsaldri, jafnvel niður í 12 - 14 ára, sem fluttir voru á bak við lás og slá í aðgerðum lögreglu í héraðinu Urumqi í Uighur í kjölfar uppreisnarinnar í júlí í sumar.
Human Rights Watch segir að þeir séu horfnir með öllu, sporlaust. Um 200 manns eru sagðir hafa látið lífið í uppreisninni. Stjórnvöld í Peking hafa neitað að svara spurningum eða gefa upplýsingar um mennina 43 sem teknir voru fastir í Xinjiang.