Sex manns eru í gíslingu hóps manna sem réðst inn í matvöruverslun í Sevran, úthverfi Parísar í morgun. Ekki er vitað hvort mennirnir eru vopnaðir en hann lét til skarar skríða um klukkan sex í morgun og er enn inni í versluninni. Lögregla hefur lokað svæðið af og umkringt verslunina. Ekki er vitað hvað mönnunum gengur til.