Lögregla í Rússlandi hefur handtekið þrjá menn sem grunaðir eru um að hafa banað manni, borðað hluta líkamans og selt aðra hluta á kebab-veitingahús.
Mennirnir voru handteknir í borginni Perm sem er 1400 kílómetra austur af höfuðborginni, Moskvu. Þeir eru sagðir heimilislausir.
Þeir réðust á hinn látna með hnífum og hamri. Líkamsleifar fundust í skógi í nágrenni borgarinnar.
Mennirnir hafa verið ákærðir fyrir morð.