Gullverð sló enn nýtt met á markaði í London í morgun. Þá seldist hver únsa (28,35g) af gulli á meira en 1.195 dollara (146.483 ÍKR). Um var að ræða gull sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn setti á markað. Það var seðlabanki Sri Lanka sem keypti gullið á þessu háa verði.