Meintur morðingi skotinn til bana

Maurice Clemmons.
Maurice Clemmons.

Lögregla í Washingtonríki í Bandaríkjunum segist hafa skotið til bana mann, sem er grunaður um morð á fjórum lögreglumönnum á sunnudag.

Maðurinn, sem hét Maurice Clemmons og var 37 ára, var skotinn til bana snemma í morgun í borginni Seattle. Hann hefur verið á flótta undan lögreglu undanfarna daga.

Lögregla hefur leitað í byggingum í borginni með aðstoð leitarhunda.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert