Skothríð í afmælisveislu

Frá Baltimore
Frá Baltimore Wikipedia

Þrír eru illa sárir eftir að skotið var úr hríðskotabyssu í afmælisveislu á hóteli í miðborg Baltimore í Bandaríkjunum. Lögreglan segir að skotmaðurinn gangi enn laus.

Lögreglan var kölluð að Sheraton hótelinu í miðbæ Baltimore klukkan 3:15 að staðartíma (8:15 að íslenskum tíma). Þá höfðu brotist út slagsmál í afmælisveislunni og einhver hafið skothríð. Lögreglan fann Uzi hríðskotabyssu í veislusalnum.

Hinir særðu voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar. Ekki er nánar vitað um skotmanninn á þessari stundu en lögreglan er að yfirheyra vitni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert