Vetrarfærð er víða í Bandaríkjunum og hafa margir ökumenn lent í vandræðum vegna snjókomu og hálku. Um 100 bílslys hafa orðið í Utah sem rekja má til færðarinnar.
Það eru hins vegar ekki allir óánægðir með sjókomuna. Skíðamenn í Norður-Karólínu hafa fagnað og nýttu tækifærið til að renna sér niður hvítar brekkur.
Í Colorado stungu menn sér í ískalt vatn sér til hressingar.