Sex sómölsk börn úr sömu fjölskyldunni létust eftir að jarðsprengja síðan úr stríðinu á milli Sómalíu og Eþíópíu sprakk nærri þorpi barnanna við landamærin.
Sprengingin varð í þorpinu Balanbale, sem áður var herstöð fyrir sómalskar sveitir í skærunum árin 1977 og 1982. Þorpsbúar eru allir sagðir vera í áfalli vegna harmleiksins, ekki síst foreldrar systkinanna sem misstu öll börn sín í sprengingunni.