Á morgun, annan í jólum, eru fimm ár liðin frá einum mestu náttúruhamförnum sögunnar þegar flóðbylgja skall á fjölmörgum
löndum í Asíu og austurströnd Afríku. Mörg hundruð þúsund manns fórust,
og milljónir manna í þessum löndum þurftu á tafarlausri neyðaraðstoð að
halda.
Mikið hjálparstarf fór strax í gang, ekki síst á vegum Rauða krossins. Miklum fjármunum var safnað víða um heim, en á Íslandi söfnuðust samtals rúmlega 170
milljónum króna á vegum RKÍ. Til viðbótar má telja vörur og þjónustu sem metin er á
alls um níu milljónir króna. Rauði kross Íslands hefur sett upp heimasíðu um hamfarirnar, en þar er gerð grein
fyrir í hvaða verkefni framlög almennings, stjórnvalda og fyrirtækja
fóru, og rætt við nokkra af sendifulltrúunum sem störfuðu í Aceh í
Indónesíu og á Sri Lanka.
„Féð safnaðist að hluta á fyrstu dögunum eftir hamfarirnar og að hluta í
sameiginlegri fjársöfnun helstu félagasamtaka sem komu að hjálparstarfi
á flóðasvæðum, Neyðarhjálp úr norðri. Frá upphafi lagði Rauði kross
Íslands mikla áherslu á að ráðstafa fénu í nánu samráði við Alþjóða
Rauða krossinn og heimamenn sjálfa, einkum í þeim tveimur löndum sem
urðu verst úti, Sri Lanka og Indónesíu.
Skipta má aðstoð Rauða kross Íslands í fjóra þætti: Neyðaraðstoð fyrstu
vikur og mánuði, útvegun sendifulltrúa á hamfarasvæðið (alls 18
sendifulltrúar), stuðning við eftirlifendur og að lokum langtíma
uppbyggingu sem enn er ekki að fullu lokið,“ segir á heimasíðu RKÍ.
Upplýsingarnar er að finna á vefslóðinni raudikrossinn.is/tsunami