Francois Fillon, forsætisráðherra Frakklands, fór þess á leit í dag við æðsta dómstól landsins að hann aðstoðaði ríkisstjórnina við samningu laga sem bönnuðu múslimum að nota blæjur sem hylja alveg andlit og höfuð.
Í bréfi sínu til dómstólsins kvaðst Fillon vilja að hann vilji að bannið verði eins víðtækt og kostur er. Franska stjórnin steig þettta skref þremur dögum eftir að kallað var eftir, í skýrslu franska þingsins, banni á notkun alhyljandi blæjum. Í skýrslunni sagði að múslimakonur sem hylji höfuð sín og andlit gangi gegn frönskum gildum með þeim hætti sem ekki sé hægt að samþykkja.