Sýður upp úr í Árósum

Átök hafa verið milli fylkinga öfgamanna í Árósum.
Átök hafa verið milli fylkinga öfgamanna í Árósum. mbl.is/Björn Jóhann Björnsson

Lög­regl­an í Árós­um í Dan­mörku hand­tók í gær þrjá­tíu og þrjá menn eft­ir mót­mæli sem skipu­lögð voru af öfga­mönn­um til vinstri gegn sam­tök­um hægri öfga­manna. Þrír menn á þrítugs­aldri eru grunaðir um al­var­lega árás á yngri mann.

Lengi hafa verið átök milli fylk­ing­anna í Árós­um.

Menn­irn­ir þrír eru grunaðir um al­var­lega lík­ams­árás á sautján ára strák sem tók þátt í mót­mæl­un­um. Þeir réðust á hann eft­ir mót­mæl­in, þar sem hann var á gangi í bæn­um.

Þeir eru einnig grunaðir um aðild að árás á ann­an mann sem slapp án telj­andi meiðsla. 

Menn­irn­ir verða yf­ir­heyrðir í dag.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert