Talíbanar í Afganistan nota óbreytta borgara sem mennska skildi. Þetta er haft eftir Mohiudin Ghori, afgönskum herforingja. Fjallað er um málið á vef danska dagblaðsins Politiken.
Að sögn herforingjans hafa hermenn bandamanna veitt því athygli að talíbanar stilli konum og börnum upp á þökum húsanna í Marjah og skjóti síðan á hermennina meðan þeir skýla sér sjálfir bak við konurnar og börnin.
Með þessu móti geti talíbanar tryggt að andstæðingar þeirra reyni ekki að svara skotárásinni.
„Talíbanar vilja gjarnan að við skjótum á móti og drepum óbreytta borgara,“ segir Mohiudin Ghori.
Fimm dagar eru síðan hermenn frá Bandaríkjunum og aðildarlöndum Atlantshafsbandalaginu (NATO) réðust til atlögu í Helmand héraði. Hermenn urðu fyrst varir við hina mennsku skildi í bænum Marjah þar sem margir borgarar styðja Talíbana.