Íbúar Chile eru nú að meta tjónið eftir einn mesta jarðskjálfta sem riðið hefur yfir heiminn í heila öld. Upptökur úr eftirlitsmyndavél sýna gesti flýja úr hóteli í Valpariso þegar 8,8 stiga sterkur jarðskjálftinn brast á. Afl hans dugði til að eyðileggja hús í 320 km fjarlægð frá upptökunum.
Björgunarmenn freista til þess að bjarga þeim sem komust af en tala látinna er komin yfir 300. Jarðskjálftinn olli hafnarbylgjum í strandhéruðunum Dichato og Constitución. Flóðbylgjurnar sópuðu burt heilu íbúðarhverfunum.
Bátar og bílar skoluðust með miklum krafti á íbúðarhús og aðrar byggingar. Flóðbylgjan skildi ekkert eftir sig nema brak og rústir. Íbúar í Constitución voru felmtri slegnir þegar þeir mátu skemmdirnar.
Daniel Torres lýsti því hvernig flóðbylgjan tók heimili hans. „Gluggarnir, veggirnir, eldhúsið skolaðist allt í burtu. Vatnið tók allt, meira að segja eldhúsdyrnar.“
Fjölskyldur völdu að sofa undir berum himni í höfuðborginni Santiago af ótta við að eftirskjálftar myndu fella heimili þeirra. Áætlað er að um tvær milljónir manna hafi verið á faraldsfæti eftir hörmungarnar.
Um leið og Chilebúar grófa sig í gegnum rústirnar voru aðrar þjóðir við Kyrrahafið að búa sig undir eftirhreytur jarðskjálftanna. Gefnar voru út flóðbylgjuviðvaranir í Ástralíu, Nýja Sjálandi, Japan og Bandaríkjunum. Sem kunnugt er ollu flóðbylgjur ekki miklu tjóni þar.