„Dagur reiði" í Jerúsalem

Palestínumenn köstuðu grjóti að ísraelskum lögreglumönnum í austurhluta Jerúsalem í dag til að mótmæla enduropnun hinu fornu Hurva samkunduhúsi gyðinga.

Í mótmælaskyni höfðu Hamas samtökin lýst yfir „degi reiði" en samkunduhúsið er stutt frá helgasta stað múslíma í Jerúsalem, al-Aqsa moskunni og Steinmusterinu. 

Átökin auka enn á þá spennu sem komin er upp vegna fyrirhugaðrar nýrrar landnemabyggðar Ísraela á hernumdum svæðum Palestínumanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert