Ný skýrsla Amnesty International og Omega rannsóknarstofnunarinnar (Omega Research Foundation), sem birt er í dag, sýnir að evrópsk fyrirtæki taka þátt í alþjóðlegum viðskiptum með pyntingatól og -tæki. Meðal þeirra eru veggáhöld sem halda fólki í fjötrum, þumalskrúfur úr málmi, og rafermar sem gefa frá sér 50.000 volta rafstraum, samkvæmt tilkynningu frá Amnesty.
Í skýrslunni „Frá orðum til athafna”er sýnt fram á að þessi starfsemi hefur haldið áfram þrátt fyrir lög frá 2006 sem banna verslun með allan löggæslu- og öryggisbúnað sem hannaður er fyrir pyntingar og illa meðferð. Þá voru einnig settar reglur um viðskipti með annan búnað sem hefur verið notaður víða um heim við pyntingar, samkvæmt tilkynningu.
Í skýrslunni kemur fram að nokkur aðildarríki Evrópusambandsins, þ.m.t Þýskaland og Tékkland, hafa frá árinu 2006 heimilað útflutning á löggæslu- vopnum og tækjum til að minnsta kosti níu landa þar sem Amnesty International hefur staðfest að slík tæki eru notuð við pyntingar.