Áströlsk stjórnvöld reyna hvað þau geta til að hindra að olía leki úr kínversku flutningaskipi, sem strandaði við Kóralrifið mikla undan strönd Queensland í fyrrinótt. Skipið er mikið laskað og er talin hætta á að það liðist í sundur. 950 lestir af olíu eru um borð í skipinu, sem var að flytja kol til Kína þegar það strandaði.
Gat kom á olíutank skipsins þegar það sigldi á fullri ferð upp á grynningar en það virðist hafa borið af leið. Um 3 kílómetra breiður olíuflekkur er nú við skipið. Talsverður öldugangur er á grynningunum og skipið nuddast við rifið. Óttast er að skipið muni brotna í nokkra hluta en sérfræðingar segja ekki hættu á því eins og er.
Skipið sttandaði við Douglas Shoal, sem er við suðurenda Great Barrier Reef og 15 sjómílur frá hefðbundinni siglingaleið. Kóralrifið nær yfir 345 þúsund ferkílómetra svæði meðfram norðurströnd Ástralíu og þar er fjölskrúðugt og viðkvæmt dýralíf.