Tjón varð á finnskum herflugvélum, sem flugu gegnum gjóskuskýið frá Eyjafjallajökli. Finnski flugherinn sagði í dag að skýið gæti haft veruleg áhrif á flugvélar.
Um var að ræða F-18 Hornet orrustuþotur, sem voru í æfingarflugi yfir norðurhluta Finnlands í gærmorgun áður en lofthelgi Finnlands var lokað. Í ljós kom síðar, að afar smákornótt eldfjallaaska var í hreyflum vélanna.
Myndir, sem teknar voru af hreyflunum, sýndu að hitinn í þeim, sem nálgast 1000°C , hefði brætt öskuna inni í vélinni og lokað fyrir loftræstiop. Það leiddi til þess að vélarhlutar ofhitnuðu.
Ljóst er að skipta þarf um hluta af hreyflunum í vélinum.