Eggjum kastað í Cameron

Cameron kyssir barn í samræmi við góðar kosningabaráttuhefðir.
Cameron kyssir barn í samræmi við góðar kosningabaráttuhefðir. Reuters

Ungur námsmaður kastaði eggjum í David Cameron, leiðtoga breska Íhaldsflokksins, þegar hann var á kosningafundi í menntaskóla í Cornwall í dag.  Sky fréttastofan segir, að Cameron hafi ekki meiðst.

Í gær veittist maður klæddur kjúklingabúningi að Cameron þar sem hann var á kosningaferðalagi. „Nú veit ég hvort kom á undan, það var kjúklingurinn en ekki eggið," hefur Sky fréttastofan eftir Cameron í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert