Pakistanar segjast bera ábyrgð á sprengju

Pakistönsk samtök talibana sögðust í myndskeiði, sem birtist á netinu í dag, bera ábyrgð á bílsprengjunni, sem komið var fyrir á Times Square í New York í gærkvöldi.   

Myndskeiðið var birt á vefnum YouTube. Þar var fullyrt, að samtökin Tarik-e-Taliban hefðu komið sprengjunni fyrir til að hefna fyrir það að tveir helstu leiðtogar Al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna í Írak voru drepnir nýlega. Einnig hafi sprengjutilræðið verið hefnd fyrir loftárásir Bandaríkjamanna á talibana í Pakistan.

Times Square í dag eftir að umferð hafði verið hleypt …
Times Square í dag eftir að umferð hafði verið hleypt á það að nýju. Reuters
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert