Þúsundir franskra heimila eru án rafmagns eftir að allt fór á kaf í snjó í suðurhluta landsins. Gífurleg ölduhæð var við strandlengju S-Frakklands í dag þegar vetur konungur barði óvænt að dyrum.
Tré og runnar brotnuðu undan snjóþunganum og rufu raflínur í suðvesturhluta Frakklands. Alls voru 23 þúsund heimili án rafmagns vegna þessara óvenjulega veðurs miðað við árstíma.
Loka þurfti flugvellinum í Perpignan og aflýsta nokkrum flugferðum um Montpellier vegna snjókomunnar.
Á frönsku riveríunni mældist ölduhæðin um sex metrar og urðu talsverðar skemmdir á munum á ströndinni en á þessu svæði er verið að undirbúa kvikmyndahátíðina í Cannes sem hefst þann 12. maí nk.