Fréttaskýring: Óvissa á lokasprettinum

Forystumenn bresku stjórnmálaflokkanna komu víða við í gær á síðasta degi kosningabaráttunnar og gerðu allt sem þeir gátu til að höfða til kjósenda. Síðustu skoðanakannanir fyrir kosningar sýndu að í raun getur allt gerst þegar kjósendur ganga til atkvæða í dag. Samkvæmt einni þeirra höfðu um 40% kjósenda ekki enn gert upp hug sinn. Langt er síðan jafnmikil óvissa hefur ríkt um úrslit kosninga á Bretlandi.

Síðasta könnunin, sem var birt, var gerð af Populus fyrir dagblaðið The Times og benti hún til þess að Íhaldsflokkurinn hefði níu prósentustiga forskot á Verkamannaflokkinn. Samkvæmt henni er Íhaldsflokkurinn með 37% fylgi, Verkamannaflokkurinn með 28% og Frjálslyndir demókratar með 27%.

Samkvæmt könnun ComRes fyrir fréttastofuna ITV og dagblaðið The Independent er Íhaldsflokkurinn með 37%, Verkamannaflokkurinn 29% og Frjálslyndir demókratar með 26%. Gengi þetta eftir fengi Íhaldsflokkurinn 289 sæti á þingi, Verkamannaflokkurinn 258, en Frjálslyndi flokkurinn aðeins 75. Samkvæmt þessari könnun eru 40% kjósenda óákveðin, en frammámenn í Verkamannaflokknum sögðu að rannsóknir flokksins bentu til þess að aðeins 20% væru óákveðin og héldu þeir því fram að helmingur þeirra, sem segðust ætla að kjósa frjálslynda, hefðu enn ekki fyllilega gert upp hug sinn.

Ekki eru neinar ákveðnar reglur til um það hvað skuli gera nái enginn flokkur meirihluta í kosningunum. Undir venjulegum kringumstæðum færu stjórnarskipti fram um leið og úrslitin eru ljós, en þurfi að mynda samsteypustjórn mun Gordon Brown sitja áfram þar til hún hefur verið mynduð.

Mikil umræða hefur verið um kosningafyrirkomulagið í Bretlandi fyrir þessar kosningar og er ljóst að henni mun ekki linna að þeim loknum. Í Bretlandi eru einmenningskjördæmi og sætafjöldi flokka á þingi er því iðulega ekki í neinu samhengi við fylgi þeirra. Þetta hefur sérstaklega átt við um Frjálslynda demókrata.

Þá er algengt að Verkamannaflokkurinn vinni nauma sigra, en Íhaldsflokkurinn með miklum mun. Íhaldsflokkurinn gæti því hæglega fengið mun meira fylgi en Verkamannaflokkurinn, en færri sæti á þingi. Frjálslyndir virðast víða munu verða í öðru sæti þannig að mikill fjöldi þeirra atkvæða mun ekki nýtast. Hvort þessi staða mun leiða til þess að breytingar verði gerðar á breska kosningakerfinu er annað mál, en líklegt er að frjálslyndir verði í lykilstöðu til að knýja fram uppstokkun á því.

Úrslitatilraun Browns

GORDON Brown forsætisráðherra gerði í gær úrslitatilraun til að telja kjósendur á að tryggja sér áframhaldandi völd með því að kjósa Verkamannaflokkinn. Hann sagði í viðtali við BBC síðdegis í gær að hann hefði „dómgreindina og gildin“ til að taka erfiðar og mikilvægar ákvarðanir. Á kosningafundi í Bradford sagði Brown að stjórn Íhaldsflokksins myndi steypa Bretlandi í kreppu með loforðum um mikinn niðurskurð. „Ég er baráttumaður, ég gefst ekki upp,“ sagði Brown. „Ég er ekki að berjast fyrir mig, heldur framtíð Bretlands,“ sagði hann.

Tveir ráðherrar úr Verkamannaflokknum hafa skorað á stuðningsmenn flokksins að sýna kænsku í þeim kjördæmum þar sem þeirra frambjóðendur eiga ekki möguleika og greiða atkvæði sitt frekar Frjálslyndum demókrötum til að koma í veg fyrir að Íhaldsflokkurinn næði meirihluta. Brown játti því í gær að sums staðar væri slagurinn á milli frjálslyndra og íhaldsmanna, en sagði að hann vildi að allir stuðningsmenn Verkamannaflokksins kysu flokkinn.

Kosningabarátta án hvíldar

DAVID Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, unni sér ekki hvíldar síðasta sólarhring kosningabaráttunnar. Hann var á þönum alla aðfaranótt miðvikudagsins og talaði við fólk á næturvaktinni í Lancashire, Yorkshire og víðar. Hann sagði í gær að í hönd færu „mikilvægustu kosningarnar í heila kynslóð“.

Cameron var spurður um hið nauma forskot, sem Íhaldsflokkurinn hefur samkvæmt skoðanakönnunum. „Ég sagði aldrei að þessar kosningar yrðu auðveldar,“ svaraði hann. „Kosningar eiga að vera ögrun. Breska þjóðin færir þér ekki stjórnartaumana á fati, hún lætur okkur með réttu vinna fyrir þeim.“

Íhaldsflokkurinn reyndi í fyrradag að höfða til stuðningsmanna Frjálslyndra demókrata með því að birta myndband þar sem minnt var á að Tony Blair hefði dregið bresku þjóðina í Íraksstríðið. Frjálslyndir demókratar hafa reynt að slá sér upp á því að þeir lögðust gegn innrásinni í Írak. Íhaldsflokkurinn gagnrýnir Verkmannaflokkinn í myndbandinu fyrir að hafa beitt blekkingum í aðdraganda Íraksstríðsins.

Kjósendur treysti betri vitund

Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra demókrata, skoraði í gær á kjósendur að treysta „sinni betri vitund“ og kjósa flokk sinn, kosningarnar í dag væru „okkar tækifæri“.

Stjarna Cleggs reis á einni nóttu í bresku kosningabaráttunni eftir frammistöðu hans í fyrstu sjónvarpskappræðum leiðtoga stóru flokkanna þriggja í breskri pólitík af þremur.

Clegg sagði í ávarpi í Eastbourne að kjósendur gætu valið á milli hinna „gömlu stjórnmála fortíðarinnar og nýrra, öðruvísi stjórnmála framtíðarinnar“. Hann bætti við að veittu kjósendur honum stuðning sinn myndi hann „vinna þrotlaust að því að efla sanngirni“ í bresku samfélagi.

Allt útlit er fyrir að flokkur Cleggs vinni sinn stærsta sigur frá upphafi í kosningunum í dag. Fari svo að enginn flokkur fái meirihluta verða frjálsir demókratar í lykilstöðu. Clegg hét því í gær þegar hann var spurður hvort hann myndi berjast fyrir hlutfallskosningu að hvernig sem kosningarnar færu myndi hann leggja áherslu á sanngjarnara kosningakerfi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert