Morðingja leitað í Cumbriu

Derrick Bird
Derrick Bird HO

Lögregla leitar nú morðingja í Cumbriu-sýslu á norðvestur-Englandi. Er hann grunaður um morð á nokkrum íbúum sýslunnar en ekki hefur verið gefið upp af lögreglu hversu marga hann myrti í morgun né heldur hversu marga hann særði.

Maðurinn sem er leitað að, Derrick Bird, er talinn hafa forðað sér á silfurgráum Picasso bíl. 

Lögregla biður íbúa í mið- og vestur-Cumbriu um að halda sig innandyra og eru ökumenn beðnir um að taka ekki farþega upp í bifreiðar sínar ef Bird er fótgangandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert