Vilja halda í lúðrana

Lúðraþeytarar á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Suður-Afríku eru ekki á því að ástæða sé til að banna vuvuzelas-lúðrana, en bann á notkun þeirra er núna til skoðunar.

Vart heyrist mannsins mál á leikjunum vegna stöðugs lúðrablásturs þannig að lítið heyrist af hefðbundinni hvatningu eða söngvum áhorfenda. Leikmenn, þjálfarar og starfsmenn sjónvarps- og útvarpsstöðva hafa kvartað mikið undan hávaðanum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert