Evrópa verður að einbeita sér að hagvexti auk þess að skera úr útgjöldum til að rétta af skuldastöðu ríkja, að mati fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Timothy Geithner. Í viðtali við BBC segir Geithner að leiðtogar heims verði að einbeita sér að hinum gríðarstóru áskorunum sem felist í að endurheimta hagvöxt og traust. Heimurinn geti ekki lengur reitt sig eins mikið á Bandaríkin og áður fyrr.
Tilefni viðtalsins eru fundir G8 og G20 ríkjanna um helgina í Toronto í Kanada. Þar sem til umræðu verða leiður út úr kreppunni sem er sú alvarlegasta síðan í kreppunni miklu. Aðspurður hvort Evrópa ætti yfir höfði sér aralanga stöðnun líkt og átti sér stað í Japan, sagði Geithner að „Evrópa hefði tök á að koma í veg fyrir það".
„Evrópa hefur þann valmöguleika að setja af stað þær umbætur og stefnur sem munu opna möguleikann á enn meiri hagvexti í framtíðinni. Þessi fundur gefur okkur færi á því að setjast niður saman og fara yfir það hvort við erum með nógu umfangsmikla stefnu til að flýt fyrir bataferlinu."
Barack Obama Bandaríkjaforseti varaði við því í bréfi til G20 ríkjanna í síðustu viku að ríki lækkuðu skuldir sínar of hratt þar sem það gæti ógnað bataferli efnahagsins. Geithner segir að það sé fleira sem sameini Evrópu og Bandaríkin í stöðunni en aðskilji jafnvel þótt þau fari ólíkar leiðir á ólíkum hraða til að ná sameiginlegu markmiði.