Franska fótboltagoðsögnin, Michel Platini, var í dag fluttur á sjúkrahús í Jóhannesarborg. Hann var að borða kvöldverð á veitingastað í borginni og kvartaði undan vanlíðan.
Aðstoðarmaður Platini, William Gaillard, sagði hann hafa þjáðst af ofþreytu. „Hann er þreyttur - búinn að vinna of mikið. Svo er hann einnig með flensu.“
Platini mun eyða nóttinni á sjúkrahúsi.