Bandarísk kona hefur verið dæmd í 9 ára fangelsi fyrir að nauðga syni sínum. Konan gaf drenginn, sem nú er 16 ára, til ættleiðingar en leitaði hann síðan uppi fyrir tveimur árum með aðstoð Facebook.
Konan heitir Aimee L. Sword og er frá Waterford, nálægt Detroit. Hún gerði samkomulag við saksóknara og játaði að hafa hafa beitt drenginn kynferðislegri árás.
Lögregla segir, að Sword hafi notað Facebook árið 2008 til að leita son sinn uppi. Drengurinn bar að þau hefðu haft kynmök á heimili Sword í Waterford og víðar.