Japönsk kona sem grunuð er um að hafa orðið fimm ára dóttur sinni að bana með því að kyrkja hana hefur nú játað fyrir lögreglunni að hún hafi verið vön að loka dóttur sína inni í þvottavél meðan vélin var í gangi.
Konan var handtekin í síðasta mánuði eftir að grunur vaknaði um að hún hefði orðið dóttur sinni að bana. Við yfirheyrslur hjá lögreglunni viðurkenndi konan að hún hefði nokkrum sinnum sett límband fyrir munninn á dóttur sinni, bundið hana á höndum og fótum og látið hana sitja inni í þvottavél fullri af vatni og stundum stillt vélina á hraðsnúning.
Hún var einnig vön að binda dóttur sína við hillusamstæðu með hendurnar hvora í sína áttina og hengja fötur fullar af vatni á handleggi hennar. Stundum skildi hún dóttur sína eftir í þessari stellingu klukkutímum saman.