Hitamet féll í Moskvu, höfuðborg Rússlands, í dag þegar hitinn fór í 37,2°C. Skrár um veðurfar hafa verið haldnar í Moskvu í 130 ár. Fyrra metið var 36,8°C sem var sett í júlí 1920.
Sumarið hefur verið eitt það hlýjasta í Evrópuhluta Rússlands síðan mælingar hófust. Sú skuggahlið er á hitunum að fjöldi Rússa hefur látist af völdum svækjunnar og uppskera hefur eyðilagst.