Skotbardagi í Bandaríkjunum

Lögregla segir, að sjö manns hafi orðið fyrir skotum utan við veitingahús í Buffalo í New York í nótt. Fjórir eru látnir. Lögreglan veit ekki hve árásarmennirnir voru margir.

Lögregla var kölluð til eftir að skothríð heyrðist frá City Grill í viðskiptahverfi borgarinnar. Þegar lögregla kom þangað voru þrír látnir utan við sjúkrahúsið og fjórir særðir. Einn lést á sjúkrahúsi og einn hinna særðu er í lífshættu. Hin látnu eru þrír karlmenn og ein kona.

Brúðkaupsveisla var haldin  í veitingahúsinu í gærkvöldi en ekki er vitað hvort skotárásin tengist henni. Lögreglan segist vera að rannsaka hvort hugsanlega megi rekja skotbardagann til deilna, sem brutust út utan við veitingahúsið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert