Jarðskjálfti á Papúa Nýju-Gíneu

Jarðskjálfti sem mældist 6,3 stig reið yfir Papúa Nýju-Gíneu í Eyjaálfu í Suðvestur-Kyrrahafi klukkan 15:09 að íslenskum tíma. Ekki hefur verið gefin út flóðaviðvörun vegna skjálftans og ekki er vitað um tjón vegna hans. Jarðskjálftar eru afar tíðir á þessum slóðum enda liggur eyjaklasinn á þekktu sprungusvæði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert