Franski dýravinurinn og fyrrum kvikmyndastjarnan Brigitte Bardot og náttúruverndarsamtökin Sea Shepherd sendu Margréti Danadrottningu bréf í dag og báðu hana um að stöðva grindhvaladráp Færeyinga.
„Þessi hryllilega uppákoma er til skammar fyrir Danmörku og Færeyjar," segir í bréfinu. „Þetta eru ekki veiðar heldur fjöldaslátrun," bæta Bardot og Sea Shepherd við og segja að um sé að ræða úreltan sið sem ekki sé hægt að réttlæta í nútímanum.
Christophe Marie, talsmaður stofnunar Brigitte Bardot, sem berst fyrir réttindum dýra, segir að fylgst hafi verið með grindadrápum í Færeyjum undanfarnar þrjár vikur.
Hann sagði að upphaflega hefði grindhval verið slátrað til að sjá eyjaskeggjum fyrir mat en því sé ekki lengur að heilsa. Í gær hafi fulltrúar samtakanna fundið fjölda grindhvalahræja, sem hefðu hreinlega verið skilin eftir í afviknum firði.
Stofnun Bardot og Sea Shepherd segja, að Danir beri ábyrgð á þessu. Þótt Færeyjar hafi heimastjórn hafi danska strandgæslan eftirlit með lögsögu Færeyja og verndi þannig bátana, sem notaðir séu til að reka hvalina á land.
Kate Sanderson, sem starfar í færeyska utanríkisráðuneytinu, segir að ásakanirnar í bréfinu séu fráleitar. Um sé að ræða veiðar, sem kunni að virðast ómannúðlegar en þeir, sem mótmæli því að dýr séu drepin með hnífum hafi aldrei verið í sláturhúsum.