24 Talíbanar féllu í árásum

Afganskur öryggisvörður gengur framhjá föllnum stríðsmanni Talíbana í morgun.
Afganskur öryggisvörður gengur framhjá föllnum stríðsmanni Talíbana í morgun. Reuters

Á þriðjatug stríðsmanna Talíbana, þeirra á meðal sjálfsvígssprengjumenn, féllu þegar þeir reyndu að ráðast á tvær herstöðvar Bandaríkjamanna í austurhluta Afganistan í morgun. Talsmaður Atlantshafsbandalagsins (NATO) sagði að hersveitir NATO hafi hrundið árásum á tvær herstöðvar í Kosh.

Hermennirnir nutu aðstoðar afganskra örygissveita. Talið er að um 24 stríðsmenn Talíbana hafi fallið í árásunum. Stöðvarnar sem ráðist var á eru framvarðstöðvar og kallaðar Salerno og Chapman.

Flestir árásarmannanna voru felldir utan við búðirnar en tveimur þeirra tókst að komast inn í þær, að því er segir í yfirlýsingu alþjóðlegu öryggissveitanna ISAF. Eftir árásirnar fundust sjö sprengjuvesti sjálfsvígssprengjumanna auk ökutækja sem voru hlaðin af sprengiefni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert