Opinberar tölur í Japan sýna að þar í landi var týndur 271 öldungur í síðustu viku. Af þeim þáðu 25 eftirlaun frá hinu opinbera. Ráðneyti heilbrigðismála, vinnumála og velferðarmála birti upplýsingar þar að lútandi í gær. Fimm af 59 eftirlaunaþegum sem voru meira en 110 ára voru þegar látnir og einn var týndur.
Ráðuneytið sagði að ekki hafi tekist að finna dvalarstað um 800 eftirlaunaþega sem komnir voru yfir 85 ára aldur. Starfsmenn sveitarfélaga um allt Japan reyndu að finna dvalarstaði elstu íbúa Japans eftir að 30 ára gamalt lík fannst í Tókýo. Það var af manni sem var sagður vera á lífi og orðinn 111 ára.
Lögreglan handtók í gær dóttur þess látna og dótturdóttur. Þær eru grunaðar um að hafa tekið við níu milljón yena (12,9 milljón kr.) eftirlaunum hins látna. Í öðru tilviki fundust líkamsleifar konu í bakpoka sonar hennar. Hún var sögð vera orðin 104 ára en hafði verið dáin í meira en áratug.
Japanir eru á meðal langlífustu þjóða heims, samkvæmt opinberum tölum. Við síðustu talningu var sagt að þar væru meira en 40.000 íbúanna orðnir 100 ára. Svo virðist sem endurskoða þurfi þær tölur vegna villna í þjóðskrá.
Japönsk yfirvöld hafa neyðst til að viðurkenna að handvömm hafi orðið í skráningu þúsunda öldunga. Þar á meðal var einn sem sem sagður var vera fæddur fyrir 200 árum.