Flóð plaga nú norður- og vesturhluta Indlands og hafa heilu þorpin þurrkast út. Hundruð íbúa hafa dögum saman verið strandaðir án nokkurrar hjálpar.
Að minnsta kosti 10 þorp eru rústir einar eftir flóðin, sem urðu í kjölfar mikilla hitabeltisrigninga. Íbúar kvarta undan því að vera matarlausir. Samgöngur eru í lamasessi enda hafa vegir ýmist rofnað eða þeir eru hreinlega í kafi.
Íbúar í Nýju-Delí búa sig nú undir það versta en vatnsyfirborð Yamuna árinnar fer stöðugt hækkandi og hafa nú slegið öll fyrri met. Yfirvöld hafa rýmt heimili og flutt íbúa á svæði sem eru hærra yfir vatnsyfirborðinu.