Teresa Lewis, sem dæmd var fyrir að skipuleggja morð á eiginmanni sínum og stjúpsyni, var tekin af lífi með eitursprautu í nótt. Hún var 41 árs. Hún er fyrsta konan sem tekin er af lífi í Virginíu-fylki síðan 1912.
Lewis varði síðustu klukkutímunum í lífi sínum með andlegum ráðgjafa og nokkrum fjölskyldumeðlimum í fangelsinu í Jarratt í Virginíu. Hún fékk síðan kjúkling að borða.
Lewis var með tárin í augunum þegar hún gekk inn í dauðaklefann. Stuttu áður en hún var tekin af lífi spurði hún hvort stjúpdóttir hennar, Kathy Clifton sem er dóttir hins myrta eiginmanns hennar, væri á staðnum. Clifton var í herbergi þar sem hægt er að fylgjast með aftökunni í gegnum glervegg. „Ég vil að Kathy viti að ég elska hana og ég biðst fyrirgefningar.“ Þetta voru hennar síðustu orð.
Lewis hefur viðurkennt að hafa farið að heiman til að mennirnir tveir gætu skotið eiginmann sinn og stjúpson.
Öll þrjú voru
fundin sek um morðið. Tvímenningarnir sem skutu mennina voru dæmdir í
ævilangt fangelsi en Lewis var dæmd til dauða með þeim rökum að hún
hefði skipulagt morðin. Lögfræðingar hennar héldu því fram að Shallenberger hefði skipulagt morðin.