Skotásás í háskóla í Texas

Grímuklæddur maður með riffil réðist inn á bókasafn Texas-háskóla í Austin í Bandaríkjunum í dag. Þar hleypti hann af nokkrum skotum áður en hann svipti sig lífi. Ekki er talið að nokkur hafi látist né slasast í árásinni.

Lögregla leitar nú annars vopnaðs manns sem talið er hugsanlegt að sé enn á háskólasvæðinu þar sem vitni hafi gefið mismunandi lýsingar á byssumanninum.

Óljóst er hversu mörgum skotum var hleypt af en að sögn vitna heyrðust um átta til tíu skot.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert