Norður kóreska ríkisfréttastofan hefur opnað vefsíðu bæði á ensku og spænsku til að auka við áróður sinn á netinu. Vefsíðan, sem heitir Korean Central News Agency, uppgötvaðist í morgun.
Fréttastofan hefur þó ekki fjárfest í léni en slóð síðunnar er http://175.45.179.68
Á forsíðu síðunnar er mynd af leiðtoganum Kim Jong-Il, ásamt öðrum embættismönnum, að virða fyrir sér hersýningu í Pyongyang.
Norður Kórea heldur nú þegar úti vefsíðu sem greinir frá fréttum úr öðrum ríkisfjölmiðlum en japanskar fréttastofur hafa þýtt þær fréttir á ensku.