Samtök fyrrverandi þjóðarleiðtoga, sem nefna sig Öldungana, hvöttu í dag eftir því að „aukinn kraftur“ verði settur í að koma á friði í Mið-Austurlöndum. Öldungarnir segja helstu veldi heims einblína á ágreiningsstjórnun frekar en úrlausnir. Meða Öldunganna eru Jimmy Carter, Mary Robinson, Gro Harlem Brundtland, Kofi Annan og Nelson Mandela.
Í yfirlýsingu sem flokkurinn sendi frá Damascus, eftir viðræður við menn á Gasasvæðinu, í Egyptalandi og Sýrlandi, segir að brýn nauðsyn sé á að sætta deilur stríðandi fylkinga Palestínumanna og binda enda á alþjóðlegt samskiptaleysi við íslömsku andspyrnuhreyfinguna Hamas.
Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir aukinnar svartsýni
nú gæta í Arabaheiminum um að friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna verði
hafnar að nýju, en þær fóru út um þúfur er Ísraelsmenn neituðu að
endurnýja hömlur á byggingarframkvæmdum landtökumanna gyðinga á
Vesturbakkanum.
„Fólk
er þreytt eftir næstum tveggja áratuga viðræður,“ sagði Mary Robinsons,
fyrrverandi forseti Írlands. Hún sagði fólkið spyrja sig hvort
Bandaríkin og „Kvartettinn“ hafi meiri áhuga á ágreiningsstjórnun en að
leysa málin, og vísaði þar til Evrópusambandsins, Rússlands og
Sameinuðu þjóðanna, sem ásamt Bandaríkjunum leiða tilraunir til að
endurvekja friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs. „Sem öldungar trúum
við því að friður geti náðst á milli þessara tveggja ríkja, en til þess
þarf kraftmeiri og víðfeðmri nálgun.“
Lakhdar Brahimi, utanríkisráðherra Alsír, segir nauðsynlegt að rætt verði við Hamas-samtökin í friðarferlinu, en þau eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök af bæði Evrópusambandinu og Bandaríkjunum.
Friðarviðræður Hamas-samtakanna og Fatah-hreyfingarinnar, ásamt forseta Palestínu, Mahmud Abbas, áttu að hefjast á morgun en þeim hefur verið frestað. Öldungarnir hafa áhyggjur af því að Fatah og Hamas þræti nú um lítilvæg mál, og staðsetningu viðræðnanna, í stað þess að ræða þau mál sem þurfi að leysa. Brahimi sagði friðarviðræður Palestínumanna og Ísraela ekki haggast þar til Hamas og Fatah ráða úr sínum ágreiningsmálum.