Drukkinn rússneskur lögreglumaður ók á þrjár stúlkur í Síberíu. Ein stúlknanna lést eftir að sjúkrabíll, sem sendur var á staðinn, ók yfir hana.
Lögreglumaðurinn var drukkinn á bíl sínum og ók á stúlkurnar. Kallað var eftir aðstoð frá sjúkrabíll, en ekki vildi betur til þegar hann mætti á staðinn en að hann ók á eina stúlkuna sem varð til þess að hún lést. Hinar stúlkurnar voru fluttar á sjúkrahús og er ástand þeirra sagt stöðugt.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem drukkinn rússneskur lögreglumaður veldur slysi. Á mánudaginn ók lögreglumaður á 16 ára stúlku í borginni Kúrsk. Í apríl ók drukkinn lögreglumaður á konu og barnabarn hennar nærri Moskvu. Barnið lést. Í mars ók drukkinn lögreglumaður á ófríska konu í Moskvu. Hún lést í slysinu.