Prins frá Sádi-Arabíu, Saud Abdulaziz bin Nasser al Saud , 34 ára, var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð á þjóni sínum í febrúar sl. á hótelsvítu í miðborg Lundúna. Var hann fundinn sekur um morðið í Old Bailey dómsstólnum í gær. Al Saud játaði við réttarhöldin að hafa orðið manninum að bana en neitar því að hafa myrt hann.
Lík Bandar Abdulaziz fannst í svítu sem þeir dvöldu í á fimm stjörnu hóteli í miðborg Lundúna þann 15. febrúar sl. Abdulaziz hafði verið kyrrtur, en mörg sár voru á líkinu sem benda til þess að hann hefði verið barinn hrottalega.
Al Saud mun sitja inni í tuttugu ár hið minnsta. Dómarinn, David Bean, sagði í morgun er hann las upp refsinguna að það sé afar fátítt að maður í sömu stétt og al Saud sé á sakamannabekk í morðmáli. En enginn sé hafinn upp fyrir lögin í Bretlandi.
Kom fram við réttarhöldin að al Saud hafi átt í kynferðislegu sambandi við þjóninn og að árásin tengdist sambandi þeirra. Jafnframt kom fram að al Saud hafi oft ráðist á Abdulaziz áður en prinsinn kemur úr einni ríkustu fjölskyldu veraldar.
Prinsinn var einnig fundinn sekur um að hafa veitt þjóninum áverka er hann réðst á hann í lyftu nokkru áður. Hafði prinsinn neitað ásökunum þar að lútandi en meðal gagna sem lögð voru fram í réttarsalnum voru upptökur úr öryggismyndavélum lyftunnar sem sýndi svart á hvítu prinsinn ganga í skrokk á þjóni sínum.
Samkvæmt vef BBC var prinsinn undir áhrifum kampavíns og kokteila er hann réðst á þjón sinn, meðal annars með því bíta hann harkalega í hvora kinn. Höfðu þeir verið úti að skemmta sér um kvöldið en þetta var á Valentínusardaginn.
Við réttarhöldin reyndi lögmaður al Saud að leyna gögnum um að prinsinn væri samkynhneigður en hann á yfir höfði sér aftöku í heimalandinu ef hann snýr einhvern tíma þangað á ný. Ekki fyrir að hafa myrt annan mann heldur fyrir að vera samkynhneigður en dauðarefsing er við samkynhneigð í Sádi-Arabíu.
Á vef Sky kemur fram að í fyrstu hafi prinsinn haldið að hann nyti friðhelgi þar sem hann er úr konungsfjölskyldunni í Sádi-Arabíu en það reyndist ekki rétt. Al Saud er barnabarn Abdullah konungs í Sádi-Arabíu. Hann sýndi engin viðbrögð þegar dómurinn var lesinn upp í gær.
Samkvæmt Sky lifði prinsinn hátt og borðaði á flottustu veitingahúsum Lundúnaborgar og á að hafa laumað vændiskörlum inn í svítu sína ítrekað.Var morðið á Abdulaziz lokakaflinn í sambandi sem snérist um vald húsbónda yfir þjóni sínum. Virðist sem prinsinn hafi ráðist aftur og aftur á þjóninn til þess að svala kvalalosta sínum.