Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, varaði við því í dag að lífi hermanna og almennra borgara gæti verið stefnt í hættu láti WikiLeaks verða af því að birta fleiri leynileg hernaðargögn á vefsíðu sinni.
„Slíkir lekar eru mjög óheppilegir og geta
haft neikvæðar afleiðingar á öryggi fólks sem málið varðar," sagði Rasmussen á
sameiginlegum blaðamannafundi með Angelu Merkel kanslara Þýskalands í Berlín. WikiLeaks
tilkynnti á mánudag að innan skamms yrðu birt fleiri leyniskjöl, en gaf ekki
uppi af hvaða toga skjölin eru.
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna, Pentagon, sagði í síðustu viku að unnið væri að því að fara yfir gagnagrunna um Íraksstríðið til að búa herinn undir mögulega birtingu leyniskjala. Pentagon biðlaði til fjölmiðla að auðvelda ekki dreifingu leynigagna um Írak og reyna að forðast að fjalla um málið. En í kjölfarið tísti WikiLeaks á Twitter síðu sinni: „Við sögðum aldrei að við ætluðum að birta eitthvað um Írak."
Í júlí síðastliðnum voru birt 77.000 leyniskjöl frá Bandaríkjaher um stríðið í Afganistan.