Lögregla í Winnipeg í Kanada ráðlagði íbúum í dag að læsa sig inni á heimilum sínum vegna þess að maður, sem skaut tvo til bana og særði þann þriðja gengur laus í borginni. Maðurinn er talinn hafa ferðast um á reiðhjóli og skotið úr afsagaðri haglabyssu á vegfarendur.
Talsmaður lögreglu hvatti borgarbúa til að opna ekki fyrir óboðnum gestum. Maðurinn virtist velja fórnarlömb sín af handahófi og ómögulegt sé að reikna út hvernig hann muni bregðast við.
Einn sjónarvottur sagði við fréttavef Winnipeg Free Press, að maðurinn hefði verið klæddur eins og ninja.