Rússar minnast þess í dag að fimmtíu ár eru liðin frá mannskæðasta slysi sögunnar sem tengist geimferðum. Hinn 24. október 1960 létu 126 manns lífið þegar R-16 ICBM geimflaug sprakk við flugtak á skotpalli sínum.
„Fólk lést í miklum kvölum, í raun brann allt fólk til dauða, en Rússland og heimurinn fréttu ekkert af slysinu eða fórnarlömbum þess,“ segir í fréttatilkynningu frá rússnesku geimferðastofnuninni Roscosmos en Sovétríkin fluttu engar fréttir af slysinu. Gögn um slysið uppgötvuðust ekki fyrr en á tíunda áratugnum.
„Slysið er talið mesti harmleikur í geimferðasögu mannkynsins.“
Í Bandaríkjunum er slysið kallað Nedelin-hörmungarnar en yfirmaður geimflaugaverkefnisins, Mitrofan Nedelin, var einn þeirra sem lést í slysinu.
Sama dag, þremur árum síðar, létust sjö manns þegar önnur rússnesk geimflaug sprakk í flugtaki.24. október er því „svartur dagur“ í rússneskri geimferðasögu en fórnarlömbum slysa er víða minnst í Rússlandi í dag.