Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, telur að nýta eigi tækifærið og renna styrkari stoðum undir sameiginlega hagstjórn í Evrópu. Hann telur að eina lausnin við vandræðunum á evrusvæðinu sé að koma á miðlægari stjórn peningamála í Evrópu.
„Hjól sameiningarinnar snúast of hægt. Miðjan verður að taka frumkvæðið á öllum sviðum sem eru lykillinn að því að ná fram sameiginlegum örlögum sambandsins, sérstaklega í fjárhagslegri, hagfræðilegri og félagslegri stefnumótun. Ríki verða að vera reiðubúin að gefa eftir meira af valdi sínu til miðjunnar.“